Lítið að marka þessa mælingu

Ókei, ég vil ekki vera leiðinlegur við fólk sem er að vinna sjálfboðavinnu fyrir göfugan málstað, en ég verð samt að segja þetta: Umhverfissinnaðir kjósendur ættu ekki að fara eftir þessari mælingu þegar þeir gera upp hug sinn.

Ég ætla að láta duga að fjalla um skor Vinstri-grænna hér. Jafnvel hin fjálglegasta umhverfisstefna verður ómarktæk í höndum flokks sem er ómarktækur. Eða hvað kallar fólk það að tala fyrir umhverfisvernd út um annað munnvikið, en um hagvöxt út um hitt? Krafan um hagvöxt er ein stærsta ógnin við umhverfið - því hagvöxtur verður mestur þegar menn skeyta minnst um mengun og rányrkju. Og til hvers? Til að geta staðið undir arðgreiðslum til hluthafa og vaxtagreiðslum til lánardrottna.

Olíuleit á Drekasvæðinu er stórmál og VG sleppa ekkert undan því að hafa hleypt því dýri út úr búrinu. En það er fleira. Man einhver eftir stóriðjunni á Bakka, í kjördæmi Steingríms Joð? Man einhver eftir evrumerkjunum í augum Steingríms Joð, þegar hann talaði fyrir rafmagnssæstreng til Skotlands? Þið áttið ykkur á því hvað sæstrengur gerir. Hann hækkar verðið á innanlandsmarkaði upp á sama plan og á meginlandinu. Þar sem það er víða fimmfalt hærra en hér. Hærra verð = meiri gróði af seldu rafmagni = mun meiri þrýstingur á að virkja meira! - Þótt ekki sé nema til þess að borga sjálfan strenginn!

Umhverfisstefna Vinstri-grænna er mikið plagg og vel unnið. Það er synd að þau noti það ekki til annars en að slá ryki í augu kjósenda. Látið ekki plata ykkur með eftirlíkingum, kjósið frekar Alþýðufylkinguna.


mbl.is Ekki að skoða gamla flokkapólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Heill og sæll Vésteinn

Eitt Austur-þýskt kolaraforkuver mengaði undir sósíalistum Austur-Þýskalands meira en allur iðnaður Vestur-Þýskalands gerði. Þá sögðuð þið kommar að það væri allt í lagi af því að þetta var besta fáanlega kyndistöð steinaldarstigs sósíalisma ykkar.

En nú þegar þið hafið klúðrað síðustu steinöld hins reykspúandi sósíalisma, þá er allt í einu heimtað að ykkur sé sköffuð ný steinöld til að dunda ykkur sósíalistískt við, með því að skrúfað sé fyrir það sem bjargaði ykkur frá síðsustu útrýmingu. Ég efast ekki um að kjósendur hoppi bara alls ekki aftur á þennan vagn ykkar.

Kveðjur til þín Vésteinn

Gunnar Rögnvaldsson, 25.10.2016 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband