Mikið var

Ég er sammála mörgum, ef ekki flestum þeim stefnumálum sem Ástþór bar fram í kosningunum sem hann tók þátt í. Það verður þó ekki sagt að hann hafi unnið hug og hjörtu landsmanna og borin von að hann verði nokkurn tímann forseti. Mér finnst ekki sanngjarnt að tala um framboð hans sem skrípaleik, eins og oft er gert, en finnst léttir að hann ákveði sjálfur að bjóða sig ekki aftur fram. Vonandi munu aðrir setja friðarmál á oddinn í þessum kosningum og öðrum, aðrir sem hafa þann kjark sem Ástþór óneitanlega hefur, en eiga betra með að ná trausti kjósenda.


mbl.is Ástþór býður sig ekki fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband