Því skyldu þær ekki standa?

Ef sagt hefur verið upp og forsendurnar eru óbreyttar, hvers vegna ætti þá að breyta uppsögnunum? Ég trúi því varla að stjórn Landspítalans haldi að þetta gangi. ef hjúkrunarfræðingarnir eru óánægðir með kjör sín og segja upp en masse, þá er ekkert hægt að gera í því. Nóg er af lausum stöðum fyrir hjúkrunarfræðinga annars staðar. Ætlar stjórnin kannski að flytja inn verkfallsbrjóta? Ef hún gefur ekki eftir, þá verður þetta mál hinn versti álitshnekkir fyrir hana og það sem verra er, skapar mjög alvarlegt ástand í heilbrigðiskerfinu, þar sem nóg er að fyrir.
mbl.is Uppsagnirnar standa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband