Óvænt og jákvætt

Hingað til minnist ég þess nú ekki að hafa séð Femínistafélagið úttala sig sérstaklega um kapítalisma eða frjálshyggju, en það var kominn tími til. Á meðan stéttaskipting, valdboð og misrétti eru boðorð dagsins, þá eru konur einn hópurinn sem liggur óbættur hjá garði. Byltingin er sameiginlegt hagsmunamál vinnandi fólks, óháð kynferði, en konur sem slíkar hafa einu meira að vinna heldur en karlar sem slíkir: Kynbundið ójafnrétti. Það er ekki hægt að gera byltinguna bara á einum vígstöðvum; það er ekki hægt að heyja bara eina baráttu og vanrækja hinar. Okkur vantar ekki fleiri kvenkyns kapítalista. Ég sé því ekki tilganginn með því að vera femínisti nema maður sé sósíalisti líka.
mbl.is Krefjast þess að menn verði dregnir til ábyrgðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband