Er lögreglan ekki að standa sig?

Getur verið að lögreglan sé að trassa viðbúnað við fyrirsjáanlegum uppþotum?

Si vis pacem, para bellum -- ef þú vilt frið skaltu vígbúast. Samviskusöm ríkislögregla ætti náttúrlega að útrústa sig með einhverju sterkara en kylfum (og nei, ég er ekki að tala um penna) og undirbúa að koma hér á fasísku lögregluríki. að öðrum kosti gæti komið hér upplausnarástand, jafnvel uppreisn.

Ekki viljum við það, er það?


mbl.is Ekki verið að breyta bifreiðum á vegum lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Vísasta leiðin til að kalla fram alvarleg uppþot er náttúrlega ögrun lögreglu. Það er vel þekkt. Þeir æsa lýðinn upp einu sinni og svo fá þeir allt draslið með DHL, sem búið er að reyna að halda frá þeim í áraraðir.

Það verður þeim örlagaríkt. En steraboltarnir og vænisjúkur ráðherran munu ekki standast mátið, vittu til.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.11.2008 kl. 03:41

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Æi, ætli þeir eigi þetta ekki tilbúið á lager?

En þú segir satt með ögranir. Agentes provocateurs eru aðferð sem við gætum alveg átt eftir að sjá hér. Það, og svo auðvitað líka heiðarlegir æsingamenn sem sjást ekki fyrir í grunnhyggni og hvatvísi.

Vésteinn Valgarðsson, 7.11.2008 kl. 03:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband