Áleitin spurning...

Það eru margar breytur óþekktar ennþá, en að ýmsu óbreyttu gæti það alveg skeð að VG komist til valda í landinu. Það fer að koma tími til að VG geri upp við sig hvað þau vilja, fyrir hvað þau raunverulega standa. Þau þurfa að gera upp við sig afstöðuna til kapítalismans, hvort þau vilja afleggja hann og taka hér upp skynsamlegra og betra hagkerfi (sem er eina rétta leiðin), hvort þau vilja reyna einhverjar "umbætur" á honum (sem er vonlaust) eða hvort þau leggja yfirhöfuð í að spyrja nauðsynlegra spurninga um hann -- og um sig (sem þau hafa ekki gert hingað til).

Hingað til hefur VG verið borgaralegur vinstri-krataflokkur. Ætlar hann að vera það áfram?


mbl.is VG stærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Stórt er spurt Valgarður og ég óttast að þú fáir engin svör.

María Kristjánsdóttir, 2.12.2008 kl. 22:10

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Fyrirgefðu Vésteinn, ég er nafnblind eða komin með elliglöp - hvern einasta dag, og í flestu sem ég skrifa rugla ég saman nöfnum. Ég bið þig innilega afsökunar.

María Kristjánsdóttir, 2.12.2008 kl. 22:11

3 identicon

Þú vilt semsagt leggja niður frelsið?

Alexander (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 01:17

4 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ekkert að afsaka.

Ég er hræddur um að þú hafir rétt fyrir þér, að ég fái engin svör. Vona þó að mér skjátlist.

Vésteinn Valgarðsson, 3.12.2008 kl. 01:55

5 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Alexander: Ég vil leggja niður frelsi forréttindastéttar til þess að fara illa með fólk, já.

Vésteinn Valgarðsson, 3.12.2008 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband