Sanders verður ekki forseti - veit ekki með Trump

Bernie Sanders verður aldrei forseti Bandaríkjanna. Hann er það vinstrisinnaður að hægri-armur Demókrataflokksins mundi ekki styðja hann í raun og því ætti hann ekki séns gegn frambjóðanda Repúblíkana. Það mætti kalla það synd - Sanders er líklega frambærilegasti kandídatinn, þótt hann sé enginn sósíalisti. Ég held að hann sé George McGovern okkar daga. Loftárása-Hillary mundi hins vegar njóta stuðnings vinstriarms Demókrata og ætti því frekar séns.

Ég veit ekki hvort sama mundi að breyttu breytanda gilda um Donald Trump. Það eru örugglega nógu margir innan Repúblíkanaflokksins sem líst mjög illa á hann til að gera hann stórlega tæpan sem forsetaframbjóðanda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta fannst mér áhugavert að lesa, hvað varðar hvernig stóru fjölmiðlarnir fjalla um Sanders: http://usuncut.com/politics/media-continues-to-ignore-bernie-sanders/

Sömuleiðis þetta myndband með Jon Stewart: https://www.youtube.com/watch?v=HnaqrepHrtc

Einar Steinn Valgarðsson (IP-tala skráð) 13.3.2016 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband