Úr hörðustu átt...

Ahmadinejad segir Ísrael byggja tilverurétt sinn á órökstuddri eða ósannaðri goðsögn. Sko, ekki ætla ég að fara að verja Ísrael, en kemur þetta ekki úr hörðustu átt frá forseta klerkaveldis?

Svo urðu ryskingar milli andstæðinga Ísraels og andstæðinga Ahmadinejads. Ég veit ekki hvað skal segja um slíkar ryskingar, hvort maður á að halda með báðum eða vera á móti báðum.

Það er súrt að sjá lýðskrumara nýta sér neyð Palestínumanna sjálfum sér og eigin stjórnmálapoti til framdráttar.


mbl.is Ahmadinejad: Helförin lygi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann hefur rosalega gaman af að stríða Gyðingnum! Gerði grín að Auzvitchis um daginn og sagði Hitler góðan mann!

óli (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 05:55

2 Smámynd: el-Toro

það að segja að helförin hafi aldrei gerst, er í þeim tilgangi að veiða atkvæði og stuðning.  þessi maður gerir hvað sem er fyrir stuðning harðlýnuaflana í landinu sem er mjög svo í nöp við ísrael.

það er hinsvegar alveg rétt að ísraelsríki stendur á mjög svo hálum rökum gagnvart aröbum/palestínumönnum.

þessi palestínudagur er árlegur og hefur verið það í mörg ár í Íran.  að sjálfsögðu settur á eftir byltinguna.

el-Toro, 19.9.2009 kl. 09:46

3 identicon

Ég er sammála fyrsta ræðumanni, það á ekki að halda með lýðskrumara heldur segja það sem er rétt: Það var helför, það voru og eru margar helfarir, gyðingahatur og gyðingaandúð lifir góðu lífi og her Ísraelsríkis er skipulega að murka lífið úr Palestínumönnum. Það er líka til sexismi og hann er úti um allt, til dæmis í Íran.

Sigurlaug Gunnlaugsdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband