Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.5.2019 | 12:46
Kaupum ekki ísraelska vígvél
https://www.facebook.com/thorunn.olafsdottir.3/posts/10158679215283438
Tilraunaflug dróna frá Egilsstöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2018 | 09:56
Glæsilegur sigur
Ég hefði orðið verulega hissa ef Sólveig Anna hefði ekki unnið þessa kosningu. Mig hefði grunað að brögð væru í tafli. En ég þorði ekki að vona að sigurinn yrði svona afgerandi, með yfir 80% atkvæða. Það var til skammar hvernig flokkseigendafélagið í Eflingur og ASÍ vann gegn framboði hennar leynt og ljóst. En það dugði þeim greinilega ekki til, raunar vafasamt að það hafi verið þeim til framdráttar.
Kosningasigurinn í gærkvöldi var ekki endir baráttunnar, heldur upphaf hinnar raunverulega baráttu. Það verður tekist á við auðvaldið, þar á meðal fulltrúa og þjóna hennar innan verkalýðshreyfingarinnar. Með þessum gersigri, í mikilvægustu kosningum seinni ára í landinu, breytist landslagið heldur betur, vígstaða stéttasamvinnuaflanna veiktist til muna.
Sólveig Anna nýr formaður Eflingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2018 | 21:56
Ekki stofnað til að flytja vopn?
Nokia var ekki stofnað til að framleiða farsíma en gerir það samt.
Nintendo var ekki stofnað til að framleiða leikjatölvur en gerir það samt.
Mitsubishi var ekki stofnað til að framleiða strokleður en gerir það samt.
Hverjum er ekki sama um upphaflegan tilgang fyrirtækis þegar gjörðir þess eru metnar? Fólk sér ný tækifæri, eins og að framleiða strokleður eða flytja jarðsprengjur á átakasvæði, sér gróðamöguleika í því. Eða "verkefni" vilja þau kannski kalla það, eða eitthvað álíka hlutlaust og tilfinningalaust.
En sá sem flytur jarðsprengjur er að hjálpa til við að drepa fólk. Höfum það á hreinu. Það er ekki hægt að firra sig ábyrgð á því með því að kenna eftirlitsaðilum um.
Ekki stofnað til að flytja vopn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2017 | 15:55
AÐ LOKNUM KOSNINGUM -- HELDUR BARÁTTAN ÁFRAM
AÐ LOKNUM KOSNINGUM -- HELDUR BARÁTTAN ÁFRAM
Það væri tilgerðarlegt að láta eins og ég væri ánægður með atkvæðafjölda Alþýðufylkingarinnar í fyrradag. En reyndar er ég alls ekki sleginn heldur. Eins og margkom fram í kosningabaráttunni, vinnast sigrar alþýðunnar ekki með atkvæðafjölda heldur í fjöldabaráttu, og Alþýðufylkingin er ekki háð kosningum eins og borgaralegir flokkar.
Það eru samt sigrar að (a) Alþýðufylkingin hafi haldið velli og ekki látið stuttan frest slá sig út af laginu, (b) málstaður okkar hafi komist þónokkuð áleiðis þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir til þess að þagga niður í okkur, (c) félögum í flokknum hefur snarfjölgað.
Með öðrum orðum: Okkar barátta heldur áfram -- strax í dag. Verkefnin framundan eru m.a. að stofna svæðisfélög í Norðvesturkjördæmi og í Suðurkjördæmi; funda með þeim félögum sem hafa bæst við nýlega og eiga eftir að bætast við á næstunni og skipuleggja uppbyggingu flokksins. Þá er ekki langt í sveitarstjórnarkosningarnar nk. vor -- en í millitíðinni mörg önnur verkefni.
Þannig að við getum verið sátt við okkur sjálf, og farið brött inn í veturinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
27.10.2017 | 13:21
23.-27. október
Könnun sem er gerð 23.-27. október dekkar náttúrlega ekki þá uppsveiflu sem hefur verið á fylgi Alþýðufylkingarinnar í gærkvöldi og í dag.
Ekki marktækur munur á D og V | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2017 | 12:55
Alþýðufylkingin berst gegn útilokun
Það er hart að upplifa höfnun, en þegar höfnunin er í leiðinni brot gegn lýðræðinu í landinu, þá er það meira en hart. Þá þarf að gera eitthvað.
Ég skrifaði grein sem birtist nú áðan á Vísi:
Opið bréf til forystumanna stjórnmálaflokkanna
Þá fjallar Eyjan/Pressan fjallar um málið:
Óánægja með ákvörðun RÚV: Ég get ekki varist þeirri tilhugsun að einhverjir séu að toga í spotta
...og Vísir.is fjallar um það:
Þetta er grófasta aðför að lýðræðislegu framboði um árabil
Yfirlýsing Alþýðufylkingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.10.2017 | 12:02
Glæsilegur R-listi, glæsilegur oddviti
Þetta er fjórði og síðasti framboðslisti okkar í Alþýðufylkingunni í þessum kosningum. Skipaður glæsilegum frambjóðendum eins og hinir listarnir. Farið á heimasíðunar okkar: https://www.althydufylkingin.is/ -- til að sjá meira af fólkinu okkar, af stefnunni og annað um flokkinn.
Erna Lína leiðir Alþýðufylkinguna í Suðvestur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2017 | 09:38
Verið ekki hrædd við "dauð atkvæði" ...
Fólk hefur oft sagt við okkur í Alþýðufylkingunni, að atkvæði greidd okkur séu í rauninni stuðningur við íhaldið vegna þess að þau hljóti að falla dauð. Nú er í fyrsta lagi ekki hægt að gefa sér að þau falli dauð. Í öðru lagi er ekki hægt að gefa sér hvernig okkar kjósendur mundu kjósa ef þeir kysu okkur ekki.
En í þriðja lagi: atkvæðamesti flokkurinn græðir vissulega á atkvæðum sem ekki skila þingsæti. Og það hefur vissulega verið íhaldið hingað til -- þangað til núna -- en ef eitthvað er að marka kannanir eru það VG sem mundu óbeint græða á ónýttum atkvæðum Alþýðufylkingarinnar í þetta sinn!
Þannig að: þið sem styðjið Alþýðufylkinguna í hjarta ykkar en viljið ekki ógna VG -- verið óhrædd að kjósa Alþýðufylkinguna!
VG með tæp 30% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2017 | 12:49
Það á ekki að selja Lyfju heldur félagsvæða hana
Kviku væntanlega falið að selja Lyfju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2017 | 12:46
500 krónur
Hann Uggi álfur, sem kemur stundum á mitt heimili, skilur alltaf eftir 500 kall.
Tannálfurinn gefi 100 krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |