Hringhenda + áskorun

Þessi fæddist í gærvköldi:

Ljótur blettur á oss er,
illsku-grettur Sjóður.
Alþjóð flettir fé og mer,
fáum léttir róður.

~~~ ~~~ ~~~ ~~~

Ef einhver er búinn að gleyma hvað er að gerast hjá VG í Reykjavík, þá skal ég minna ykkur á það:

Gerum hreint um borg og bý,
í bláa spyrnum fæti:
Kjósið Véstein annað í
eða þriðja sæti!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Það vantar ekiki sjálfsálitið!!!

Hvaða afrek hefur þú helst unnið???'

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 13:31

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Margt og mikið. Ég get nefnt sem dæmi að ég hef starfað á geðdeild í níu ár.

Vésteinn Valgarðsson, 6.2.2010 kl. 13:36

3 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Já, það er virðingarvert. ég hef sagt mig úr VG og hef ekki kosningaréttAnnars hefði ég væntanlega kosið þig.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 13:45

4 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Takk fyrir það. Þú ert víst ekki sá eini sem hefur snúið baki við VG upp á síðkastið.

Vésteinn Valgarðsson, 6.2.2010 kl. 14:00

5 Smámynd: ThoR-E

Þú hefðir fengið mitt atkvæði Vésteinn. Ef ég byggi ekki á Skaganum.

Þessir úrslit voru mér vonbrigði.

Kveðja

ThoR-E, 8.2.2010 kl. 10:50

6 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Takk fyrir það. Fólk er víst misánægt með niðurstöðuna.

Vésteinn Valgarðsson, 8.2.2010 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband