Frábært

Þetta er réttarbót.

Áður en fólk hallar sér á lárberin þarf samt að uppræta rót vandamálsins. Það eru félagslegu aðstæðurnar sem reka fólk út í vændi. Það þarf að útrýma (meðal annars) fátækt, fíkniefnavandamálum og illum heimilisaðstæðum. Það dugir ekkert minna.


mbl.is Kaup á vændi bönnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aumingja Íslenska þjóðin!
Búin að reka af sér ríkisstjórn braskara og bankaræningja.
Í staðinn fær hún ríkisstjórn "Talibana feminista" og jafnréttisfasista.
Nú verður bráðum farið að höggva hendur og fætur af fólki sem, ekki getur fylgt kreddum vinstri grænu Talibanpáfanna.
Það er ekki hægt að kjósa Vinstri Græna á meðan veruleikafirrt feministapakkið tröllríður flokknum.
Fram með potta og pönnur.

Dæmi um "siðferðislög" í framkvæmd.

PUNISHMENT FOR NON-MARITAL SEX
Examples of convictions under Sharia law
http://www.religioustolerance.org/isl_adul1.htm

Draumur Talibana feministaklíkunnar í VG!

Jón (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 11:50

2 identicon

Miðað við reynslu Svía af þessari stefnu, þá sé ég nú ekki alveg hvað er svona frábært. Nema þessum lögum sé ætlað að vernda blygðunarsemi óviðkomandi fólks og tryggja völd þeirra sem sjá enga ástæðu til að hlusta á sjónarmið ætlaðra fórnarlamba til að ráðskast með líf annarra. 

Bendi t.d. á Petru Östergren http://www.petraostergren.com/content/view/44/67/

Einnig þessa grein af vefsíðu samtaka fólks í kynlífsiðnaði í Svíþjóð. http://www.sans.nu/engelska/consequences.htm

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 15:36

3 identicon

Úr frétt RÚV: "Þrír þingmenn höfnuðu frumvarpinu þeir: Björn Bjarnason, Jón Magnússon og Kjartan Ólafsson."

Og 16 þingmenn sátu hjá.

Manni finnst eitthvað gruggugt við þetta...

Einar Steinn (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband