AGS er innheimtustofnun

Tilgangurinn með veru AGS á Íslandi er ekki að hjálpa íslenskum almenningi með því að bæta þjóðfélagið. Tilgangurinn er að innheimta skuldir, að "ráðleggja" ríkinu um hvernig það eigi að fara að því að bera drápsklyfjarnar. Meðölin: Skera niður útgjöld til félagslegrar þjónustu; opna landið fyrir "erlendri fjárfestingu" alþjóðlegs fjármálaauðvalds; selja eignir hins opinbera, þar með taldar auðlindir. Með öðrum orðum, gefa í í áframhaldandi frjálshyggjustefnu.

"Hugsið ykkur hvað væri gaman," sagði Hannes Hólmsteinn um árið, "ef við gæfum bara í." Þeir sem hafa gaman af að gefa í í frjálshyggjuvæðingunni ættu að vera ánægðir með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.


mbl.is Nota AGS sem vopn gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hannes Hólmsteinn er í felum. AGS á sér öflugri talsmenn á Íslandi því miður.

Ísland þarf nýja hugsun og ferð þremenninganna á vegum Attac vekur vonir.

Sigurður Þórðarson, 4.2.2010 kl. 12:17

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við þurfum breytingu á stjórnkerfinu! Spillingin er alger og fullt af þjófum í stjórninniekki skrítið að fátt komi upp á yfirborðið vegna þess að þau eru að verja sjálfan sig ekki almenning sem á að borga.

Sigurður Haraldsson, 4.2.2010 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband