Díalektísk messa á sunnudag

Lífsskoðunarfélagið DíaMat - félag um díalektíska efnishyggju heldur opna díalektíska messu næstkomandi sunnudag: 10. apríl, klukkan 11:00. Hún verður haldin í Friðarhúsi, Njálsgötu 87.

Díalektísk messa fer fram líkt og málfundur: hefst með framsögu og svo taka við almennar umræður sem hafa þann tilgang að allir viðstaddir skilji viðfangsefnið aðeins betur.

Framsögumaður á sunnudaginn verður Þorvaldur Þorvaldsson og umfjöllunarefnið: Hugmyndaþróun og sambúð ólíkra lífsskoðana.Heitt verður á könnunni og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgengi fyrir fatlaða er ekki auðvelt en þó mögulegt.

DíaMat - félag um díalektíska efnishyggju er veraldlegt lífsskoðunarfélag sem stofnað var árið 2015. Það er í umsóknarferli til að verða opinberlega skráð hjá innanríkisráðuneytinu sem lífsskoðunarfélag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Þegar ég sá orðið "messa" hélt ég fyrst að þú værir orðinn kristinn :) Hjúkket!

Wilhelm Emilsson, 7.4.2016 kl. 18:42

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ekki held ég að Vésteinn hafi verið affermdur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.4.2016 kl. 08:03

3 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég hef ekki verið affermdur, nei, þótt ég hafi einu sinni leitað hófanna með það án árangurs.

Vésteinn Valgarðsson, 11.4.2016 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband