Alþýðufylkingin er stolt og bjartsýn

Inga Sigrún Atladóttir skrifar afsökunarbeiðni vegna þess sem miður hefur farið hjá Vinstri-grænum á kjörtímabilinu. Margt er gott í þessum pistli og sumt stendur mér það nærri, sem fyrrverandi félaga í VG, að mér þykir rétt að bregðast við. Inga segir t.d. réttilega að talsmenn vinstristefnu virðist hafa misst sjálfstraustið eftir langvarandi áróður hægriaflanna. Það er út af fyrir sig rétt – en það sem verra er, þá hafa þeir líka bæði misst áttanna, og traustið á fólkinu.

Sá sem hefur skýra vinstrisinnaða sýn, sér að höfuðmeinsemdir þjóðfélagsins hverfast meira og minna í kring um þá staðreynd að hér ræður fámenn yfirstétt ríkjum og arðrænir hina. Í öðru lagi að eina aflið sem getur staðið gegn valdi auðstéttarinnar er samtakamáttur fólksins – og þá því aðeins að hann sé skipulagður og honum sé beint gegn forréttindum valdastéttarinnar. Þessi skilningur einkennir ekki stefnu eða forystu Vinstri-grænna, fremur en annarra krataflokka, hvorki fyrir né eftir formannaskiptin.

Það er ekki nema eðlilegt að forysta flokks, sem stendur í stappi en skilur hvorki hvaða markmiðum hún ætti að berjast fyrir, né með hvaða tækjum, missi sjálfstraustið.

Einhver kynni að spyrja hvað sé þá eiginlega eftir?

Nokkuð annað en þvæld síð-endurskoðunarstefna, í bland við þá speki Hermanns Jónassonar að allt sé betra en íhaldið?

VG hefur sýnt stefnu sína í verki. Það er stefnan um að laga sig að kröfum Samfylkingarinnar, þó það kosti ESB-aðild. Laga sig að kröfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Laga sig að kröfum fjármálaauðvaldsins og endurreisa gálgana. Laga sig að kröfum kvótaauðvaldsins og fresta afnámi kvótakerfisins þangað til það kemst í öruggt skjól næstu hægristjórnar. Boða sæstreng til Evrópu. Banna verkfall og ríghalda í punginn í kjarasamningum við opinbera starfsmenn. Stefna sem hlýtur að valda vinstrimönnum bæði vonbrigðum og álitshnekki.

Í afsökunarpistli Ingu Sigrúnar nefnir hún að það hafi „ekki verið byggt upp fjármálakerfi á grunni sameignar í anda vinstrimanna“ – það eru orð að sönnu. Ég man ekki á hve mörgum flokksráðsfundum voru fluttar ályktunartillögur, m.a. af mér sjálfum og Þorvaldi Þorvaldssyni, um félagsvæðingu fjármálakerfisins, og ýmist felldar jafnharðan eða vísað frá – að ógleymdum báðum landsfundunum sem ég sat, og mörgum fundum sem ég sat ekki. Ástæðan blasir auðvitað við: Flokkurinn er bara hægrisinnaðri heldur en hann vill sjálfur kannast við, því miður. En verkin tala sínu máli og fáir sem láta plata sig aftur.

Einhver spurði áðan hvað væri eftir. Vinstristefnan er eftir, þótt VG hafi yfirgefið hana.

Kallið mig spámann, en ég bar aldrei miklar vonir til ríkisstjórnarinnar sem nú er að fara frá. Að vísu nógu miklar til að verða dálítið vonsvikinn – en aðallega nógu litlar til að segja bless við flokkinn í tæka tíð til að stofna nýjan, í félagi við fleiri vinstrimenn sem vilja ekki bara kalla sig vinstrimenn heldur fylgja og stunda vinstristefnu.

Alþýðufylkingin er komin fram á sjónarsviðið, komin til að vera og er opin fyrir hverjum þeim sem eru sammála stuttri og skýrri stefnuskrá okkar: Við stöndum fyrir fullveldi, jöfnuð og fyrir félagsvæðingu fjármálakerfisins og annarra innviða samfélagsins. Vinstrimenn eru boðnir sérstaklega velkomnir, til að taka loksins þátt í uppbyggingu flokks sem er á forsendum vinstrimanna og í anda vinstrimanna.


mbl.is Vinstri hugsun bar af leið á kjörtímabilinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Oft var þörf, en nú er nauðsyn.

"Við stöndum fyrir fullveldi, jöfnuð og fyrir félagsvæðingu fjármálakerfisins og annarra innviða samfélagsins. Vinstrimenn eru boðnir sérstaklega velkomnir, til að taka loksins þátt í uppbyggingu flokks sem er á forsendum vinstrimanna og í anda vinstrimanna. "

Gangi ykkur vel.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 22.4.2013 kl. 13:38

2 Smámynd: corvus corax

Ég var einn þeirra sem lét glepjast af loforðaflaumi Steingríms Joð og hans fylgifiska. Ég hef þegar beðið þjóðina afsökunar á því og lofað því að það muni ég aldrei gera aftur. Vinstri glæra bar ekkert af leið, það er haugalygi! Vinstri glærir voru aldrei á sinni yfirlýstu áætluðu leið, það var alltaf fyrirfram ákveðið að um leið og kjörstaðir myndu loka yrði tryggt að aldrei stæði til að standa við eitt einasta gefið kosningaloforð. Þvert á móti var fyrsta verk Vinstri glærra að tryggja endurreisn bankakerfisins og annarra auðjöfra og glæpamanna sem búnir voru að ryksuga fjármálakerfið og losa pokana í útlenskum skúffufyrirtækjum og almenningur átti síðan að borga brúsann með tryggilegri skipulagningu svikaranna í Vinstri glærum og svikafylkingu skjaldborgarkellíngarinnar Jóhönnu Sig.

corvus corax, 22.4.2013 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband