Sósíalismi í einu sveitarfélagi

Það er ánægjulegt að sjá framsókn og íhald stefna í sína sneypulegustu útreið á friðartímum. En hvað með hina flokkana? Að mínu viti er þar einn sem knár þótt hann sé smár, það er Alþýðufylkingin (ég játa líka að ég er hlutdrægur, þar sem ég er virkur félagi í henni).

En áður en þið ákveðið hvað þið ætlið að kjósa, skora ég á ykkur að skoða stefnuskrána okkar. Hún er fljótlesin og skorinorð og sker sig úr öðrum stefnuskrám þar sem hún boðar kúvendingu í borginni í félagsvæðingarátt. Hún er hér:

>> Sósíalismi í einu sveitarfélagi <<


mbl.is Sterkari í kosningum en könnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ætli það verði ekki miklu frekar þið, sem fáið lélega útreið í kosningunum heldur en Framsóknarflokkurinn? Hann er strax kominn í 5,3%,* en þið í Alþýðufylk­ing­unni ekki nema 0,2%! Framsóknarkonan fyrst flýgur brátt inn, vertu viss, og ég spái Framsókn fleiri atkvæðum en VG og Pírötum hvorum um sig.

* http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/05/26/skortur_a_malefnalegum_umraedum/ (fregn í dag af nýbirtri MMR-könnun).

Jón Valur Jensson, 26.5.2014 kl. 22:26

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Framsóknarkonan fyrsta

átti þetta að vera!

Jón Valur Jensson, 26.5.2014 kl. 22:27

3 identicon

Jón Valur orðin framsóknarmaður...ja hérna....allt getur nú gerst.

Helgi jónsson (IP-tala skráð) 27.5.2014 kl. 13:44

4 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég tel aldrei kjúklingana fyrr en þeir eru búnir að klekjast út. Við í Alþýðufylkingunni erum brött hvort sem við fáum mann inn eða ekki -- og hvort sem við fáum mann inn eða ekki, þá gleður það samt ef Framsóknarflokkurinn fær fyrir ferðina.

Vésteinn Valgarðsson, 27.5.2014 kl. 16:06

5 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Auk þess býst ég við að Alþýðufylkingin fái fleiri atkvæði heldur en Kristilegi þjóðernisflokkurinn.

Vésteinn Valgarðsson, 27.5.2014 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband