Auðvitað á að leyfa moskuna

Það er ljóta ruglið sem Framsókn hefur komið sér í með þessum örvitalegu athugasemdum um moskuna. Glæsilegur oddviti sem þeir hafa valið sér og vonandi trampast þessa flokksafskræmi núna niður í flór sögunnar í eitt skipti fyrir öll.
 
Auðvitað á að leyfa íslenskum múslimum að byggja sér mosku, það eru bara þeirra réttindi. Ef menn ímynda sér að þar verði skipulögð hryðjuverk eða leyniskyttur verði uppi í mínarettunni, þá þurfa menn að leita sér hjálpar. Kommon!
 
Nú ætla ég hvorki að taka upp hanskann fyrir íslam per se né önnur trúarbrögð -- en er það ekki eftirtektarvert, að þegar sjálfmiðaðir vesturlandabúar gagnrýna t.d. illa meðferð á konum í íslömskum samfélögum -- þ.e.a.s. gagnrýna karlrembu og kynbundið ofbeldi -- þá beina þeir spjótunum að íslam en hvorki að karlrembunni sem slíkri né ofbeldinu sem slíku. Kjarni þessara viðhorfa, það sem umræðan snýst um, er ekki mannréttindi heldur óttinn við hina.

Ef íhaldssöm viðhorf eða herská menning eru vandamálið, þá á ekki að gera einhver trúarbrögð að sökudólgi -- en ef maður færi eftir því, lægi beinast við að gagnrýna í leiðinni íhaldssöm viðhorf og karlrembu á heimaslóðunum í leiðinni, ásamt herskárri menningu og kynbundnu ofbeldi. Ætli það sé það sem menn óttast?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samkvæmt 63.-65.gr. er trúfrelsi leyft, innan ramma Stjórnarskrárinnar,t.d.skulu konur og karlar njóta jafns réttar hvívetna, því er ekki að fagna, í þeim trúarbrögðum sem þú ert að tala um,Stjórnarráð Íslands var þriðjudaginn 27. maí að skrifa undir jafnréttissáttmála UN Women.

Síðan mega trúfélögin ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða alsherjarreglu.

Barnagiftingar og heiðursmorð falla hér undir, og margt margt fleira.

Trúarbrögð sem falla ekki innan ramma Stjórnarskrár og annara laga sem gilda í landina, á silyrðislaust að banna.

Halldór Björn (IP-tala skráð) 28.5.2014 kl. 13:54

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Þaðer andstætt góðu siðferði að innræta börnum að þau fæðist með erfðasynd. Finnst þér þá ekki best að byrja á að banna starfsemi allra kristinna trúfélaga?

Barnagiftingar og heiðursmorð koma þessu moskumáli ekki við.

Vésteinn Valgarðsson, 28.5.2014 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband