Má segja svona??

New York-borg er næst­um al­gjör­lega stjórnað af gyðing­um

Má Jón Ólafsson segja svona? Er það ekki kallað ein tegund gyðingahaturs að segja að gyðingar stjórni einhverju? Má þetta?

Að öllu gamni slepptu: Ef menn eru svona heitir stuðningsmenn arabamorða, þá held ég að þeir geti átt sín viðskipti sjálfir.


mbl.is Dugar ekki að breyta tillögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert í meira lagi ruglaður að skrifa svona; þér hefur farið aftur í færslunum; varst einu sinni vitsmunavera. Gekkstu nokkuð á ljósastaur?

Jón Valur Jensson, 20.9.2015 kl. 00:56

2 identicon

Vá hvað þessi Jón er ókurteis.  Þoli ekki þegar gamalt fólk kann sig ekki.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.9.2015 kl. 15:37

3 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Þú hittir merkilegt nokk naglann á höfuðið í þessari færslu. Þessir íslensku bisnissmenn sem eru hræddir um eigin viðskipti í Ameríku og eru þess vegna að mótmæla viðskiptabanni á Ísrael eru verri antísemítar en þið sem hafið þó pólitíska afstöðu. En ef þér er svona annt um arabískan almenning, er þér kunnugt um að á einni viku falla tólf þúsund manns í Sýrlandi, jafn margir og allir Palestínumenn sem hafa látið lífið síðan 1948 í átökum við Ísrael. Í Alsír voru 200 000 myrtir af íslamistum á 10. áratugnum. Sádí-Arabar eru að sprengja Jemen í tætlur. O.s.frv. Btw. Hvaðan kaupir borgin bensín og olíu? Þó ekki frá góðgerðarsamtökum í Sádí eða Katar?

Sæmundur G. Halldórsson , 21.9.2015 kl. 02:05

4 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Sæmundur, mér er vel kunnugt um þetta. Ég er enginn stuðningsmaður harðstjóra í arabalöndunum. Þeir eru oftar en ekki dyggilega studdir af vesturveldunum. Þeir sem hafa reynt að fara eigin leiðir, byggja upp einhvers konar velferð í löndunum eða slíkt, hafa verið níddir niður og ráðist á þá af Vesturveldunum eða handlöngurum þeirra. Dæmi: Saddam Hussein, Muammar Gaddafi, þessa dagana Bashir al-Assad. Í leiðinni má muna eftir Muhammed Mossadegh, þótt Íran sé reyndar ekki arabaland.

Vésteinn Valgarðsson, 21.9.2015 kl. 11:52

5 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Gott að heyra. Þarna erum við að mestu leyti sammála. Að Kanar skuli hafa sett Mossadegh af var níðingsverk gagnvart írönsku þjóðinni sem hafði skelfilegar afleiðingar sem almenningur þar líður enn fyrir. Hinir þrír voru (og al-Assad er)samviskulausir harðstjórar. Það er ömurlegt upp á að horfa að um leið og blóðþyrstum harðstjórum er komið frá völdum í Arabaheiminum skuli ástandið verða hundrað sinnum verra en það var áður. Þeir héldu stríðandi fylkingum niðri með ofbeldi. Um leið studdi Saddam mikla nútímavæðingu í Írak, þegar hann var ekki að framja flöldamorð. Ég þekki persónulega menntaða Íraka og þekki þessa sögu vel.

Sæmundur G. Halldórsson , 21.9.2015 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband