1.3.2016 | 09:30
Lífeyrissjóðir gæta ekki hagsmuna almennings í landinu
SA segja: Lífeyrissjóðirnir gæta hagsmuna almennings í landinu - nú skal ég ekki efa það, að fólk í SA og fólk sem er á launum hjá lífeyrissjóðum eða öðrum fjármálafyrirtækjum trúi þessu sjálft. En ég held að þessi fullyrðing hljómi hlægilega í eyrum margra, ef ekki flestra annarra.
(Til samanburðar lýsa SA sjálfum sér svona: Samtök atvinnulífsins eru í forystu um samkeppnishæft rekstrarumhverfi sem stuðlar að arðbæru fjölbreyttu og ábyrgu atvinnulífi sem bætir lífskjör allra. - má ekki líka skilja þetta sem gæta hagsmuna almennings í landinu?)
Staðreynd: Beinir fulltrúar auðvaldsins eiga urmul fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóða.
Spurning: Ætli þeir gæti ekki hagsmuna umbjóðenda sinna?
Staðreynd: Lífeyrissjóðirnir hafa tapað gríðarlegu fé í verkefnum sem einhverjir hafa grætt gríðarlega á, og á að kaupa ónýt verðbréf sem einhverjir hafa þá sloppið undan.
Spurning: Er hægt að útskýra það allt með klaufaskap?
Fullyrðing: Uppsöfnunarsjóðir með ávöxtunarkröfu eru ekki bjarghringur heldur myllusteinn fyrir almenning í landinu. Ávöxtunarkrafan þýðir annars vegar brask, þ.e. umsvif sem annað hvort tapa peningum eða græða á okurvöxtum eða arðráni. Hins vegar þýðir hún kröfu um síaukinn hagvöxt, sem getur ekki gengið umm vegna þess að kapítalisminn er ekki eilífðarvél heldur háður eigin tortímingu í formi kreppu. Kreppa kemur nokkrum sinnum á hverri starfsævi og í hvert skipti tapast verulegur hluti uppsöfnunarsjóða.
Þegar maður leggur saman iðgjaldið og peningana sem við borgum í vexti af lífeyrissjóðslánunum - hvað ætli gegnumstreymiskerfi mundi þá kosta í samanburðinum? Það væri áhugavert að vita það.
Og talandi um áhugavert: lesið ályktun Alþýðufylkingarinnar um lífeyrismál. Hún er áhugaverð!
Mótmæla aðdróttunum um lífeyrissjóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.