Ábyrgðarhlutur hjá stjórn spítalans

Stjórn Landspítalans teflir á tvær hættur með því að gefa ekki eftir í deilunni við hjúkrunarfræðingana. Eru það svona tilskipanir sem stjórn Landspítalans vill að einkenni störf sín? Hvað ætla menn að gera þegar 98 hjúkrunarfræðingar ganga út á einu bretti? Krossa bara puttana? Ég sé ekki að spítalanum sé stætt á öðru en að brjóta odd af oflæti sínu og koma til móts við hjúkrunarfræðingana. Spítalinn hefur ekki efni á að þrengja að starfsfólki sínu. Þar helst þrennt í hendur: Það er of fátt, of illa launað og of hlaðið störfum. Ég reikna með að almenningur í landinu sýni hjúkrunarfræðingunum skilning; þær eiga heimtingu á að laun, vinnutími og önnur kjör séu í ásættanlegu horfi, rétt eins og aðrir.


mbl.is Stál í stál á Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr heyr.

Held að tímabært sé að Guðlaugur Þór og hans hyski því augljóst er að hann er að koma sínum snötum fyrir í heilbrigðiskerfinu eftir undangegnar breytingar verði sett utanvallar. Hann er augljóslega illa innrættur og þessutan vanhæfur í starfi óbermið það.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 16:34

2 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Nú er ég ekki kunnugur þessari ákveðnu deilu en það virðist sama sagan, taka hart á launahækkunum. Á sama tíma og hart er grafið undan lýðræðislegum öflum er hart tekið á launafólki. Forgangsuppröðun í fjölmiðlaáróðri er með eindæmum, það er í lagi að eyða stórum upphæðum í leikföng fullorðinna en mikið séð eftir peningum í nauðsynjar.

Það er löngu kominn tími á að þessi mikilvægu en verr launuðu störf hækki í launum, þessi sem snúa að alúð sjúklinga og líka þeirra sem snúa að umhugsun barna. Þessi störf mega vel vera eftirsótt.

Sparnaður þyrfti að fara fram á öðrum sviðum, t.d. með því að ríkisvæða aftur. Það virðist svo að ef ríkisbatterí þénar aura þá er það einkavætt. Svo til að vega upp á móti tekjutapi ríkisins er sparað á sviðum sem ekki mega við slíku.  

Ólafur Þórðarson, 27.4.2008 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband