Raddir vorsins

Ég sá tvær í síðustu viku; önnur var á röltinu á Grundarstígnum og ég sá ekki betur en að hún væri að þvo sér á bak við eyrun með loppunum að hætti katta. Merkilegt, því ég vissi hvorki að býflugur hefðu eyru, loppur né tungu. Þannig að kannski var hún að gera eitthvað annað.

En það er annars ekkert grín að vera býfluga á þessum síðustu og verstu tímum. Þær eru útsettar fyrir sjúkdómum eins og aðrar lífverur, og um þessar mundir ku steðja að þeim býflugnaalnæmi. Þetta er ekkert grín. Grafalvarlegt mál. Býflugur frjóvga plöntur.  Hvað haldið þið að gerist ef stofnarnir hrynja?


mbl.is Hunangsflugan boðar til vors
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Við lifðum frábæru, áhyggjulausu lífi áður en býflugur og geitungar gerðu innrás hingað til lands um miðjan níunda áratug síðustu aldar.

Kveðja í bæinn. 

Guðríður Haraldsdóttir, 30.4.2008 kl. 20:46

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Mér finnst þær nú bara huggulegar, annað en illi tvíburinn, geitungurinn.

Já, ég veit að það er stutt síðan býflugur námu land, en í vistkerfum þar sem lengri hefð er fyrir þeim eru þær gríðarlega mikilvægar.

Vésteinn Valgarðsson, 30.4.2008 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband