Morðtól

Klasasprengjur eru með ógeðfelldari vopnum sem herir heims nota. Líbanon er ennþá freknótt af þessum hroða eftir loftárásir Ísraela fyrir tveim árum. Það kemur ekki á óvart að Bandaríkjamenn, Rússar og Kínverjar vilji ekki undirrita, en hvers vegna kom ekki fram í fréttinni að Ísraelar neituðu líka að undirrita? Indverjar og Pakistanar neituðu líka. Þessi sex ríki höfðu ekki einu sinni fyrir því að mæta til Dublin á þessa ráðstefnu. Kanadamenn undirrituðu "með fyrirvara" -- fyrirvara um hvað? Við hvaða aðstæður er klasasprengja rétta græjan? Hér má annars lesa samninginn (pdf), sem 111 ríki hafa undirritað.


mbl.is Samningur um bann á klasasprengjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ísraelsmenn hafa oftast neitað að fylgja tíðarandanum varðandi vopn og vígbúnað. Þeir komast t.d. líklega upp með það einir þjóða í miðausturlöndum að eiga kjarnorkuvopn en virðast samt geta komist hjá því að sæta almennilegu eftirliti óháðra aðila. Þrátt fyrir að þeir séu einna stríðsglaðastir að því er virðist, stutt síðan þeir réðust á Líbanon og hafa gegnum tíðina oft staðið í bardögum við margar nágrannaþjóðir sínar. Bandaríkjamenn fylgja þeim svo að málum því þeir eru miklir vopnaframleiðendur og Ísrael er stór viðskiptavinur auk þess sem valdamikil stétt manna þar vestra er hliðholl málstað zíonista. Með þessum viðskiptum hafa þeir svo gegnum Ísraelska herinn fengið reynslu af notkun nýrra vopna o.þ.h. við raunverulegar aðstæður, mun fyrr og með minni fyrirhöfn heldur en með því að bíða eftir næsta stríði Bandaríkjamanna og þurfa svo að bera allar ákvarðanir um það undir bandaríska kjósendur. Vissulega er þetta gríðarstór bi$$ne$$ og er sennilega ein af aðal útflutningsatvinnugreinum BNA, peningarnir sem eru í spilinu er svo stórir að það er erfitt fyrir okkar litlu Íslendinga að skilja en útskýrir samt ágætlega hversvegna framleiðsla og sala vopna er svo víða samofin stjórnmálum og öðrum alþjóðasamskiptum. Kannski er samt rétt að taka fram að það eru fleiri en Ísrael sem kaupa vopn af BNA, t.d. er Saudi-Arabía einn stærsti kaupandi orrustuþotna frá BNA í seinni tíð og ganga þau farsælu viðskipti í grunnatriðum út á vöru- og þjónustuskiptiskipti: olíu (og hernaðarlegt aðgengi) fyrir vopn (og vernd).

Guðmundur Ásgeirsson, 29.5.2008 kl. 04:06

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Laukrétt.

Ekki má heldur gleyma Egyptalandi, þar sem Bandaríkjastjórn ræður ríkjum í gegn um kvislinginn Mubarak, í skiptum fyrir blóðpeninga.

Vésteinn Valgarðsson, 29.5.2008 kl. 05:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband