Heiðursgestur rak lestina

Það var kostulegt að sjá sjálfan Svarthöfða reka lestina með Sigurði Sigurðarsyni vígslubiskupi og hinum svartstökkunum. Ég hló þangað til ég fékk illt í magann! Verst að hafa misst af þessu þegar það skeði, þetta hefur verið óborganleg sjón. Það er líka stórhlægilegt að fjölmiðlar skuli þegja um þetta (nema seinni fréttir Rúv) og að Mogginn hafi skipt um mynd með fréttinni!
mbl.is Prestastefna hófst með messu í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mogginn birti nú samt myndina í prentútgáfu sinni. Sammála þér um að þessi uppákoma er eitthvað það besta sem gerst hefur lengi - frábær viðbót við orminn svarta og langa. Spurning hvaða boðskap er hægt að lesa inn í gjörninginn, allavega er af nógu að taka!

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 08:37

2 identicon

Mynd af fréttafulltrúa kirkjunnar við athöfnina ... we are not amused!

http://www.flickr.com/photos/karlg/2568099209/in/set-72157605541055002/

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 09:33

3 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Hehehe, já, ég var búinn að sjá þetta. Bloggið skrifaði ég áður en ég las prentmoggann, en netmogginn skipti um mynd. Einhvern veginn dettur manni í hug að þar hafi einhver hringt í einhvern.

Vésteinn Valgarðsson, 11.6.2008 kl. 10:17

4 identicon

Mér finnst þetta ótrúlega fyndið og frábært tækifæri sem þið gefið kirkjunni til að ljóma, sbr. þessa færslu

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:27

5 identicon

May the Force be with you.

Gunnhildur Reynisdóttir (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 17:12

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Mikið þykir mér leitt að hafa ekki verið heima með röntgengleraugun mín. Það hefði við gaman að sjá hver pörupiltinn sem rak lestina var. Kannski var þetta einhver aflóga guðfræðinemi, eða afvegaleiddur Heimdellingur af góðum ættum? Eða kannski varst þetta þú síra Carlos?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.6.2008 kl. 23:23

7 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Þú segir nokkuð, Vilhjálmur, kannski var þetta Carlos! Kenningarnar þínar verða betri og betri!

Vésteinn Valgarðsson, 14.6.2008 kl. 01:46

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ja, síra Carlos, sem ég þekki vel frá menntaskólaárum okkar í MH, var jú óneitanlega Heimdellingur, en þá var ég yfirlýstur guðleysingi og kommi. Nú hef ég vitkast en kannski hefur Carlosi förlast, þótt mér þyki það mjög ólíklegt. Hann er drengur góður og ég hef úr fjarska fylgst með ferli hans innan Þjóðkirkjunnar, sem ég tilheyri ekki frekar en þú. Hann yrði betri biskup en margur annar, enda ekki óbarinn.

Ég er nú samt enn á því að þú gætir hafa verið í helgislepjuprósessíunni i gervi Svarthöfða og nú held ég að þú hafir gengið í svefni, sem skýrir allt http://thrymursveinsson.blog.is/blog/thrymursveinsson/entry/565260/#comments

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.6.2008 kl. 06:37

9 identicon

Ég hefði farið sem Bobba Fett, Vilhjálmur, lengra nær nú ekki ímyndunaraflið. En talandi um menntaskólaárin, það var náttúrlega bara gaman að koma jakkafataklæddur í menntaskóla sem var fullur af róttækum gallabuxna og lopapeysukommum. Ég hef hinsvegar aldrei verið Heimdellingur, eða gengið í Sjálfstæðisflokkinn, enda jafnaðarmaður, eins og Jesús.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 15.6.2008 kl. 08:47

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll Carlos, ég var aldrei í lopapeysu (kannski tvisvar). Ekki neita ég því að þú varst einn glæsilegasti viðskiptavinur Karnabæjar, en ekki hélt ég að jafnaðarmenn hefðu verið til á þessum árum.

Svona er nú hættulegt að dæma menn út frá fötunum einum. P&O höfðu ekki rétt fyrir sér þegar þeir héldu því fram að "Fötin sköpuðu Manninn". Það er maðurinn sem skapar fötin. En fólk lætur oft blekkjast af flottum jakka og góðri skálmpressu eða opinni buxnaklauf.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.6.2008 kl. 11:21

11 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ekki hef ég fjarvistarsönnun og því síður hirði ég um að bera þetta af mér. Auk þess fannst mér þessi gjörningur hinn sniðugasti þannig að þú mátt alveg halda það mín vegna að þetta hafi verið ég í svefni.

Vésteinn Valgarðsson, 16.6.2008 kl. 03:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband