Auka hana varla mikið

Sádar hafa að ýmsu leyti farið illa að ráði sínu í sambandi við olíuvinnslu undanfarin ár. Fyrir það fyrsta hafa þeir dælt svo miklu saltvatni ofan í lindirnar að þær eru margar hverjar stórskemmdar, þar á meðal sjálfur stóri Ghawar, stærsta olíulind heims. Í öðru lagi hafa þeir að líkindum blöffað olíubirgðir sínar stórkostlega til þess að öðlast meiri völd á markaðnum en eðlilegt væri að þeir hefðu. Þeir geta kannski aukið framleiðsluna eitthvað, en það mun varla muna mikið um það og þess utan er það skammgóður vermir.
mbl.is Sádi Arabar sagðir ætla að auka framleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband