Hann biður um samstöðu núna!

Ég man ekki eftir að Geir og félagar hafi sýnt almenningi mikla samstöðu þegar þeir voru að semja kjarasamninga síðast. Ég man heldur ekki eftir að þeir hafi staðið sérlega fast með almenningi þegar þeir voru að einkavæða símann eða bankana eða neita að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun. Ég held að við ættum að leyfa bankaelítunni að krafsa sig upp úr flórnum upp á eigin spýtur og sýna samstöðu með sjálfum okkur með því að skipta um þjóðskipulag, taka hér upp sósíalisma og stjórna hagkerfinu eftirleiðis með réttlæti, skynsemi og framsýni og fyrir almannahag.
mbl.is Skuldir bankanna þjóðinni ofviða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband