Mótmæli á Austurvelli, laugardag klukkan 15

Á morgun, laugardag 1. nóvember, eru stór útimótmæli gegn ríkisstjórninni. Krefjumst afsagnar óhæfra stjórnmálamanna, brottrekstrar óhæfra embættismanna og afnáms óhæfs kerfis! Klukkan 15 á Austurvelli! Látið það berast!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þar sem ég er úti á landi og kemst ekki upp úr snjóskaflinum, þá langar mig að hnykkja á að krafa verði gerð um að orkulindir þjóðarinnar verði skjalfest þjóðareign í þjóðskrá og það fylgi að ekki megi ráðstafa þeim nema með þjóðaratkvæðagreiðslu, ekki leigja eða selja til útlendinga hvorki uppsprettur né virkjanir. Nú eru alþjóðafyrirtækin og glóbalistarnir hér að díla um yfirtöku á þessu í gegnum IMF og þar með ræna þjóðina sjálfstæðinu.

Þetta verður að stoppa. Ekkert hefur verið mikilvægara. Hér hfur þremenningaklíka rænt völdum og höndlar við heimskapítalitana án umboðs og vitneskju þings og þjóðar. Hefur skellt á heimsmeti í stýrivöxtum samkvæmt samkomulagi við IMF, sem ekki hefur verið klárað að skrifa né samþykkja. Þetta er orðið algert Twilight Zone hérna. Réttast væri að skjóta þessa fávita til að stoppa gerninginn.  Ef þetta verður ekki stöðvað verðum við enn á ný leiguþý erlendra lénsherra og nú án vonar um náð.

 Nú óskar maður þess að helvíti sé til svo þessir landráðamenn fái að brenna þar. Okkar helvíti er anars hér og nú og þeirra smíð frá a-ö. Allt á þetta sér upphaf í lögjafanum.

Jón Steinar Ragnarsson, 31.10.2008 kl. 19:25

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Í stjórnarskrá átti þetta auðvitað að vera. Að festa eignarhald fólksins á auðlindunum í stjórnarskrá.

Jón Steinar Ragnarsson, 31.10.2008 kl. 19:26

3 Smámynd: Johann Trast Palmason

Þú gleimir gönguni frá hlemmi kl 2 að austurvelli kl 3

auðvita mætum við öll

við stöndum saman

Johann Trast Palmason, 31.10.2008 kl. 22:11

4 Smámynd: proletariat

Jón Steinar, ríkisstjórnin tekur ekkert mark á stjórnarskránni.

proletariat, 31.10.2008 kl. 23:34

5 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Það er dagsatt að það þarf að breyta stjórnarskránni. Gerbreyta. Ég held að það sé einmitt rétti tíminn til þess nú á þeim tímum sem fara í hönd.

Vésteinn Valgarðsson, 1.11.2008 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband