Réttlæti og frelsi fyrir Sómala

Íslamistarnir eru eina sómalska aflið sem getur komið lögum yfir landið. Eþíópíumenn, sem eru þar sem leppar Bandaríkjastjórnar, eru ófærir um það. Sama má segja um ættbálkahöfðingja og stríðsherra. Íslamistarnir eru líka þeir einu í Sómalíu sem geta bælt niður sjóræningjana.

Talandi um sjóræningjana, þá eru þeir upphaflega fiskimenn sem hafa misst viðurværið eftir að fiskimið undan Sómalíu voru gereyðilögð, fyrst með ofveiðum og síðan -- og ekki síður -- með því að vestræn fyrirtæki losuðu sig við kjarnorkuúrgang þar. Í sjóinn. Eftir langa og árangurslausa baráttu fyrir því að fá bætur fengu þeir nóg og ákváðu að "sækja bætur" sjálfir með sjóránum.


mbl.is Þúsundir her- og lögreglumanna hafa gerst liðhlaupar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband