3.10.2016 | 15:17
"mannorðið"
Er eitthvað eftir af mannorði útrásarvíkinganna?
Ísland er dannað land. Hér er yfirleitt ekki æpt á eftir mönnum á götum úti, þótt þeir hafi unnið landi og þjóð til stórskaða. En fólk hugsar sitt. Og hver sem hefur komið inn á kaffistofu á vinnustað undanfarin 8 ár veit hvernig er talað um þá. Og hvað er mannorð, annað en það orð sem fer af manninum?
Ákæran svertir mannorðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2016 | 21:37
Af oddvitunum skuluð þér þekkja þá
"Íslenska þjóðfylkingin" afhjúpar hvað hún stendur fyrir. Gústaf Níelsson er þekktastur fyrir andúð sína á hommum og útlendingum, fyrir utan að hafa rekið fatafellustað. Reiður kall.
Önnur stefnumál eru til uppfyllingar. Gústaf sagði á dögunum að ÍÞ mundi ekki undir neinum kringumstæðum taka þátt í vinstristjórn, enda væri það glapræði. Skyldi hann ætla að kannski sannfæra Sjálfstæðisflokkinn um að rétta hlut aldraðra og öryrkja?
Lýðskrum og óttamakerí.
Gunnlaugur og Gústaf efstir hjá Þjóðfylkingunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.9.2016 | 22:31
"51,5% þeirra sem náðist í tóku afstöðu"
Þegar helmingur aðspurðra svarar ekki spurningunni, þá er ekki að marka niðurstöðuna í skoðanakönnun. Hún er bara ekki marktæk. Hvað mundu hinir segja? Við vitum það ekki, en ekki er ósennilegt að það mundi breyta útkomunni verulega. Og hvað kýs þetta fólk svo, og hverjir kjósa?
Ég man eftir könnun fyrir nokkrum árum, þar sem fólk var líka spurt hvað það hefði kosið síðast. Svörin við því voru verulega frábrugðin niðurstöðu þeirrar kosningar sem þá var spurt um. Það segir sitt um skekkjuna.
. . . . . . .
Hins vegar mæli ég með því að fólk kíki á heimasíðu Alþýðufylkingarinnar. Þar má m.a. líta framboðslistann í Reykjavík norður og í Norðausturkjördæmi, auk oddvitans í Suðausturkjördæmi.
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.9.2016 | 00:12
Íhaldssöm gildi
Sjálfstæðisflokkurinn er íhaldsflokkur. Sá sem kemur inn í hann ætti ekki að verða hissa að mæta "íhaldssömum skoðunum og gildum".
Varaformaðurinn segir líka skilið við flokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2016 | 13:38
Marktækar tölur?
Neðst í fréttinni er hlekkurinn "nánar". Sé hann opnaður er ekki að sjá að MMR segi hvert svarhlutfallið var í könnuninni. Það kemur fram að 905 hafi svarað, en ekki hve margir hafi ekki svarað. Þetta skiptir máli. Allir sem vita eitthvað um skoðanakannanir vita, að lágt svarhlutfall gefur ómarktæka niðurstöðu. Einhvers staðar milli 55% og 65% er krítískur punktur, þar sem svörin fyrir neðan eru einfaldlega ekki þess virði að lesa þau. Það er þess vegna góð regla að taka ekki mark á skoðanakönnunum þar sem kemur ekki fram að svarhlutfallið sé að minnsta kosti tæplega 60%.
Meðal annarra orða, þá er Alþýðufylkingin að koma sterk inn.
Píratar og Sjálfstæðisflokkur hnífjafnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2016 | 12:22
Listi Alþýðufylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður
Alþýðufylkingin gerir kunnugan framboðslista sinn í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir Alþingiskosningarnar 29. október 2016:
1. Vésteinn Valgarðsson, stuðningsfulltrúi, Reykjavík
2. Sólveig Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur, Reykjavík
3. Gunnar Freyr Rúnarsson, geðsjúkraliði, Reykjavík
4. Þóra Sverrisdóttir, leikskólakennari, Reykjavík
5. Tinna Þorvaldsdóttir Önnudóttir, leikkona, Reykjavík
6. Sindri Freyr Steinsson, stuðningsfulltrúi, Reykjavík
7. Axel Þór Kolbeinsson, tölvutæknir, Reykjavík
8. Héðinn Björnsson, jarðfræðingur, Danmörku
9. Sigríður Kristín Kristjánsdóttir, námsmaður, Reykjavík
10. Jón Karl Stefánsson, forstöðumaður, Reykjavík
11. Ásgeir Rúnar Helgason, dósent í sálfræði, Svíþjóð
12. Einar Andrésson, fangavörður, Reykjavík
13. Sóley Þorvaldsdóttir, starfsmaður í veitingahúsi, Reykjavík
14. Kristleifur Þorsteinsson, tölvunarfræðingur, Kópavogi
15. Ólafur Tumi Sigurðarson, háskólanemi, Reykjavík
16. Elín Helgadóttir, sjúkraliði, Reykjavík
17. Ingi Þórisson, námsmaður, Hollandi
18. Stefán Ingvar Vigfússon, listamaður, Reykjavík
19. Lúther Maríuson, afgreiðslumaður, Reykjavík
20. Viktor Penalver, öryrki, Hafnarfirði
21. Björg Kjartansdóttir, sjúkraliði, Reykjavík
22. Örn Ólafsson, bókmenntafræðingur, Danmörku
Heimasíða Alþýðufylkingarinnar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.9.2016 kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2016 | 23:01
Vésteinn Valgarðsson leiðir lista Alþýðufylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður
Þetta var að koma fyrir sjónir almennings:
7.9.2016 | 20:58
Fjögurra ára áætlun Alþýðufylkingarinnar
Í kosningabaráttunni 2013 báru okkur margir á brýn, að stefnuskráin væri of almennt orðuð og ekki nógu konkret. Vera má að það sé rétt -- en markmiðið á sínum tíma var að stefnuskráin væri bæði stutt og hún gæfi tóninn fyrir stefnuna, frekar en að vera mjög ítarleg. Jæja, nú er hún komin, skráin sem svarar spurningunum sem brunnu á vörum ykkar, kæru landsmenn:
Alþýðufylkingin gefur út stefnuskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.9.2016 | 17:31
Víst trúverðug stefna frá kapítalísku bankakerfi
Íslendingar eru nú í þeirri stöðu að geta ákveðið hvernig þeir vilja hafa bankakerfið í framtíðinni og sagt stopp við því að hrein kapítalísk hugsun og bankakerfið sé allsráðandi í stjórnkerfinu hér á landi. Samt sem áður hefur enginn stjórnmálamaður eða frambjóðandi fyrir þingkosningarnar í haust komið með trúverðuga stefnu í þessum málefnum. Þetta sagði Andrés Jónsson almannatengill í þættinum Vikulokum á Rás 1 í dag.
Hér varð Andrési á í messunni. Alþýðufylkingin er nefnilega með trúverðuga stefnu um að félagsvæða fjármálakerfið, en með því eigum við reyndar ekki bara við bankakerfið, heldur líka lífeyrissjóðina og tryggingafélögin. -- Félagsvæðing fjármálakerfisins er raunar leiðarstefið í stefnuskrá okkar og lykillinn að farsæld þjóðarinnar. Með félagsvæðingu eigum við andstæðuna við markaðsvæðingu, þ.e. ekki bara opinberan rekstur, heldur að viðkomandi starfsemi sé ekki rekin í gróðaskyni heldur sem þjónusta við fólkið í landinu. Þannig ætti að reka fjármálastarfsemina, tilgangur hennar á að vera að bjóða almenningi hagstæða fjármálaþjónustu. Það á ekki að vera neinn annar tilgangur með fjármálastarfsemi í landinu.
Lykilatriði er að öll fjármálastarfsemi verði félagslega rekin svo hún hætti að soga til sín stóran hluta verðmæta úr hagkerfinu til ágóða fyrir fámennan minnihluta.
Lesið: Stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar.
Geta sagt stopp við bankakerfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.8.2016 | 09:02
Lýðræðislega lýðveldið Kongó
Fréttin talar um kjörskrá í "Lýðveldinu Kongó". Með henni er mynd af Joseph Kabila, forseta Lýðræðislega lýðveldisins Kongó (e. Democratic Republic of the Congo). Landið við hliðina á því landi heitir (á ensku) "Republic of the Congo", oft kallað Kongó-Brazzaville, eftir höfuðborginni.
Fyrir nokkrum árum flutti Mbl.is frétt af því að skotið hefði verið á skipalest Kabila forseta í Kóngó. Í ensku fréttinni stóð "convoy" -- sem þýðir líka bílalest, en það var einmitt bílalest forsetans sem var skotið á.
Hvað er þetta með Mbl.is og þýðingar sem tengjast Kongó?
Vill seinka kosningum í Kongó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.6.2016 | 22:31
Vesturblokk og Sýrlandsstríð
Þórarinn Hjartarson skrifar á vef Alþýðufylkingarinnar: Vesturblokkin og Sýrlandsstríðið.
3.6.2016 | 19:52
Alþýðufylkingin fundar á Akureyri á morgun laugardag
Alþýðufylkingin heldur opinn kynningarfund á Café Amour á Akureyri kl. 14 á morgun, laugardag.
Nánar hér: Alþýðufylkingin fundar á Akureyri á laugardag
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.6.2016 kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.5.2016 | 13:41
Rammpólitísk umsögn
Loks segir þar að almennt sé ekki talið heppilegt að hið opinbera hafi mikil afskipti eða beiti miklum inngripum á húsnæðismarkaði fremur en á öðrum mörkuðum hagkerfisins, nema þá helst til að mæta tímabundnum markaðsbresti í afmörkuðum tilgangi. [leturbreyting mín]
Þessi texti er greinilega skrifaður af einhverjum sem er gegnsósa af markaðshyggju, væntanlega eftir að hafa drukkið yfir sig af borgaralegri hagfræði. Hvað ætli fólki finnist um árangur markaðarins við að koma hér á húsnæðiskerfi þar sem allir hafa efni á því sem þeir þurfa? Ætli fólk sé almennt þess sinnis?
Íbúðafrumvarp hækki fasteignaverð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2016 | 13:17
Stríð um heimsyfirráð: Hnattræn auðvaldselíta þolir ekki sjálfstæð ríki
Þórarinn Hjartarson skrifar massagrein á vef Alþýðufylkingarinnar:
Stríð um heimsyfirráð: Hnattræn auðvaldselíta þolir ekki sjálfstæð ríki
31.5.2016 | 13:09
Rosalega lélegt
Ef frammistaða manns er svo léleg að birting hennar mundi fæla burtu ferðamenn, þá er þöggun kannski á sinn hátt eðlilegt framhald af þessari að öðru leyti lélegu frammistöðu.
Þetta minnir mig á það þegar nepölsk yfirvöld höfðu áhyggjur af fækkun ferðamanna árið 2004. Ástæðan var að það hafði verið borgarastríð í landinu í 8 ár. "Lausn" stjórnvalda var að fá öndunargúrúinn Ravi Shankar til að koma og efna til einhverrar uppákomu, í von um að laða að indverska pílagríma.
Það var samt ekki eins lélegt og þetta, þótt það megi hafa mismunandi skoðun á því hvort sé sturlaðra.
Ástralar létu ritskoða SÞ-skýrslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.5.2016 | 11:35
Alþýðufylkingin: Opinn fundur annað kvöld
Á morgun miðvikudag kl. 20 heldur Alþýðufylkingin opinn fund í Friðarhúsi um Alþingiskosningarnar framundan. Þorvaldur Þorvaldsson kynnir drög að kosningastefnuskrá. Umræður um kosningaundirbúning. Allir velkomnir nema auðvaldið!
Sjá nánar hér.
23.5.2016 | 22:57
Barnabarn
Ef Friðrik átti Samúel sem átti Lovísu sem átti Friðriku ... hvernig getur Friðrika þá verið barnabarn Friðriks?
-- -- -- --
Að deyja tveim vikum eftir að hafa fætt áttunda barnið hljómar eins og erfitt líf og ömurlegur dauðdagi. Dauði af barnsförum er sem betur fer sjaldgæfur á Íslandi nú til dags, en ömurlegt til þess að hugsa hvað hann er ennþá algengur í mörgum fátækum löndum.
Íslensk prinsessa í ómerktri gröf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2016 | 20:51
Íslendingar, framfarirnar og kirkjan
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2016 | 13:37