Meðan ÞEIR velta vöngum!?

Það jaðrar nú við ósvífni að stilla þessu svona upp. Það er aðeins ein lausn á Íraks-málinu, og hún er sú að Bandaríkjaher og aðrir heimsvaldaherir snauti í burtu og eftirláti Írökum sjálfum öll völd í landinu. Það er undir forystu Bandaríkjanna komið hvort þetta fer fram með góðu eða illu. Það má búast við því að andspyrnan haldi áfram þangað til hernámsliðið tapar -- eða Bandaríkjastjórn hefur vit á að draga það í burtu. Að öllu óbreyttu kæmi ekki á óvart að öldurnar lægi fyrst þegar nýr "strongman" kemst til valda. Og var þá betur af stað farið en heima setið? Fyrir bandaríska hergagnaiðnaðinn já. Fyrir alla aðra nei. Stríðið og hernámið, frá upphafi til enda, eru glæpir sem allir tapa á nema fámenn elíta sem setur eigin hagsmuni ofar réttlæti eða fólki.
mbl.is Myndi þrýsta á Íraksstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband