Sýndarréttarhöld

Hvaða mark haldið þið að verði takandi á því sem þessi dómstóll kemst að?
mbl.is Söguleg réttarhöld að hefjast á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Guðjónsson

Ég held að þetta séu ekki / verði ekki / sýndarréttarhöld. Ég skrifaði ritgerð í áfanga hjá Mike (Mikael M. Karlsson) um réttarhöldin yfir Rasul og Hamdi (guantanamo föngum) fyrir Hæstarétti USA. Í því máli var fallist á ýmsar málsástæður þeirra, svo varla hafa það verið sýndarréttarhöld? 6 af 9 dómurum töldu t.d. að Hamdi hefði aðild og rétt á að vefengja stöðu sína sem óvina hermaður fyrir bandarískum dómstólum, en lögmenn ríkisins héldu því fram að hann hefði ekki þann rétt. 4 dómarar vildu að honum yrði sleppt tafarlaust, ef  ekki yrði ákært. Þetta var bara alvöru réttarhald, þar sem dómararnir mátu í alvöru gögn málsins, og tókust á um niðurstöðuna, og höfðu ólíkar skoðanir. Ég tel enga ástæðu til að telja að annað verði uppi á teningnum í þessu máli.

Sindri Guðjónsson, 6.6.2008 kl. 22:31

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég sé enga ástæðu til þess að treysta þessum kónum til þess að hafa réttarhöldin sanngjörn. Miðað við aðferðir þeirra hingð til í þessu svokallaða hryðjuverkastríði, þá á ég ekki von á því. Menn sem halda mönnum í pyntingabúðum án dóms og laga og nota áróður, lygar og hálfsannleika til þess að koma sínum málsatð áleiðis -- það eru ekki týpurnar sem ég treysti. Þeir eiga eftir að dæma þessa karla (sem eru örugglega engir englar) og gera þá að blórabögglum. Ef þeir vilja sækja þá til saka sem stóðu að 9/11, þá held ég að þeir séu að leita langt yfir skammt að ætla sér að sækja þá til Afganistan.

Vésteinn Valgarðsson, 6.6.2008 kl. 23:33

3 Smámynd: Sindri Guðjónsson

Vésteinn, afhverju getur þú ekki skrifað um enska boltann, djammið eða ameríska kvikmyndaleikara, eins og við hin venjulega fólkið?

Dómararnir eru ekki þeir sem hafa haldið mönnum í pyntingabúðum án dóms og laga, notað áróður, lygar og hálfsannleik. Valdinu er skipt. Ég skal fúslega fallast á það að framkvæmdarvaldið í USA, undir forystu Bush hafi beitt hálfsannleika í þessu hryðjuverka stríði. En þeir eru ekki að leyta langt yfir skammt þegar þeir sækja menn til Afganistan  sem stóðu að 9/11. 9/11 var ekki "inside job". Þeir sem stóðu að verknaðinum viðurkenna hann fúslega á sig, og eru stoltir af sjálfum sér.

Sindri Guðjónsson, 7.6.2008 kl. 00:49

4 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Herdómstóll sem notar játningar og aðrar upplýsingar sem eru fengnar fram með pyntingum er ekki hlutlaus dómstóll. Tímasetning þessara réttarhalda er auk þess rammpólitísk, svona rétt fyrir kosningar. Ég veit ekki frekar en þú hverjir stóðu að árásunum og tek ekki mark á því hvað einhverjir skeggjaðir karlar í Fjarskanistan segjast hafa gert. Sérstaklega ekki þegar jafn margt bendir til þess að það sé ekki satt, eins og í þessu tilfelli.

Vésteinn Valgarðsson, 7.6.2008 kl. 06:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband