Átján mánuði

Svo árásir Ísraelshers eru "svar við eldflaugaárásum Hamas". Ætli herforingjarnir hafi séð það í kristalskúlunni sinni, að Hamas mundu skjóta eldflaugum? Eða ætli þeir átti sig bara á því að járnkrumla hernámsins getur af sér andspyrnu, þannig að ef þeir hertu hana nógu fast að kverkum Gaza-borgar, þá væri bara tímaspursmál hvenær skálkaskjólið kæmi? Reynslan hlýtur að hafa kennt þeim það síðarnefnda. Herforingjar og stjórnmálaleiðtogar Ísraels kunna að vera kaldrifjaðir, þeir kunna að vera rasistar, en ég geng nú ekki svo langt að segja að þeir séu með lága greindarvísitölu.


mbl.is Æfðu innrásina í átján mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Meinhornið

Hamas eru búnir að vera að skjóta eldflaugum síðan 2001 sauðurinn þinn.

Meinhornið, 5.1.2009 kl. 10:14

2 identicon

Já, ehemm, og hve lengi hefur hernám Ísraela á landi Palestínumanna varið?

Meinhornið hefði e.t.v. gott af því að spá aðeins í því áður en það fer að uppnefna fólk.

Einar Steinn (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband