Gallað fólk, fullkomin stefna

"Mjög falleg hugmynd -- en hún virkar ekki!"

"Gengur upp í þeoríunni, en gerir ekki ráð fyrir að fólk sé mannlegt."

Hugmyndirnar voru fullkomnar, það var fólkið sem var gallað. En sú vitleysa. Hugmyndirnar voru líka gallaðar, enda byggðust þær á kerfi sem er gallað. Aðalgallinn við fólkið er ekki að það sé eitthvað vont í sjálfu sér, heldur að það hefur gleypt við rugli.


mbl.is Stefna brást ekki, heldur fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er eitthvað sem költ stunda, þ.e. að fría sjálf sig ábyrgð og koma henni yfir á fylgjendurna.  Þannig er hægt að sannfæra sanntrúaða um að költið sé óskeikult og gott en fylgjendurnir séu ófullkomnir og þarfnist leiðsagnar.  Svona taktík er óspart nýtt þegar spádómar hafa ekki ræst og dreifa þarf athyglinni frá þeirri staðreynd, útskýra hvað fór úrskeiðis og fá trúaða til að halda sig við söfnuðinn þrátt fyrir að hafa orðið fyrir skaða vegna hins óuppfyllta spádóms.

Björn I (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 08:38

2 identicon

"Kapítalismi er falleg hugmynd. Hún bara virkar ekki." ;)

Einar Steinn (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 14:45

3 identicon

Minnir mig á orð Geirs Haarde um að hann hafi haft rétt fyrir sér "svo langt sem það nær" (sic.).

Einar Steinn (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband