Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Alvöru aðgerðir í þágu heimilanna

Undanfarið kjörtímabil hef ég oft og margsinnis tjáð óánægju mína með ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna. En satt að segja er ég ennþá óánægðari með Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn. Ef landsmenn kjósa þá kóna yfir sig, þá verður sko farið úr öskunni í eldinn. Það er nákvæmlega ekkert að marka loforð þeirra um aðgerðir í þágu heimilanna. Eina raunhæfa aðgerðin í þágu heimilanna, sem ég hef heyrt boðaða í umræðunni undanfarið, er félagsvæðing fjármálakerfisins og þar með stórlækkaður vaxtakostnaður. Það er alvöru aðgerð. Og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru sko ekki að fara að félagsvæða fjármálakerfið, því get ég lofað ykkur.  Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar, hélt erindi um félagsvæðingu fjármálakerfisins, sem mér þykir skýra sjónarmið okkar vel: Félagsvæðing fjármálastarfseminnar.

Sjá einnig: Svona minnkum við vægi verðtryggingarinnar.

mbl.is Fyrirheit „í þágu heimilanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvískinnungshátturinn afhjúpar tækifærisstefnuna

Það þarf forhertan haus til að sjá ekki þversögnina í því að "telja hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins" en vilja samt halda áfram aðlögunar- og samningaferlinu. Ég hefði getað kyngt ýmsum málamiðlunum sem VG hafa gert fyrir ríkisstjórnarsamstarfið, en að samþykkja ESB-umsókn er eitt af því sem ég get ekki sætt mig við. Sá sem vill ekki ganga í sambandið sækir hvorki um aðild að því, né samþykkir umsókn um aðild að því, né kýs flokk sem gerir það. Það er svo einfalt.

Alþýðufylkingin er eini vinstriflokkur á Íslandi sem er fortakslaust á móti ESB-aðild. Stefnuskrá hennar tekur af öll tvímæli um það og framhaldsstofnfundur okkar um síðustu helgi lagði enn frekari áherslu á andstöðuna í Ályktun um Evrópusambandið.

Alþýðufylkingin er flokkur sem vinstrisinnaðir fullveldissinnar geta fylkt sér um og stutt án þess að vera með óbragð í munninum.

mbl.is VG vill ljúka ESB-viðræðum

mbl.is Unir niðurstöðunni um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrími bolað burt

Þann 13. febrúar síðastliðinn greindi Sandkorn í DV frá því að mjög væri þrýst á Steingrím J. Sigfússon að víkja sem formaður VG, til þess að minnka skaðann í komandi kosningum. Fram kom að jafnframt væri þrýst á Katrínu Jakobsdóttur að gefa kost á sér í hans stað, en hún hefði tekið dræmt í það.

Þann 14. febrúar reyndi Steingrímur að bera sig vel í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins: „Ég hef ekkert annað gefið í skyn en það standi til. Ég er formaður og var kosinn á landsfundi 2011 og ég veit ekki til þess að ég hafi gefið mönnum tilefni til vangaveltna um neitt annað.“

Þann 15. febrúar fjallaði DV aftur um að reynt væri að fá Steingrím til að víkja og Katrínu til að taka sæti hans.

Þann 16. febrúar tilkynnir Steingrímur loks að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Auðvitað sagðist hann ekki vera að bregðast við minnkandi fylgi í skoðanakönnunum – hverjum hefði nú getað dottið það í hug? – en hann trúði því samt að ákvörðun hans yrði til góðs fyrir flokkinn. Ansi er ég hræddur um að það sé of seint í rassinn gripið. Og auðvitað sagði hann, eins og hann hefur svo oft orðað það áður, að hann hefði nú aldrei ætlað að verða eilífur augnakarl í þessum stóli. Þvert á móti þætti honum vera kominn tími fyrir kynslóðaskipti.

Lesið restina af þessari grein: Steingrími bolað út: Pólitísk eftirmæli.

mbl.is Katrín fékk 98% í formannskjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsnæði og mannauður

Mikið er það skrítið, að það sé hægt að byggja þúsundir fermetra af spítalabyggingum, en ekki koma til móts við kröfur hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta um löngu tímabærar kjarabætur. Og hvernig á að borga laun til að manna allar nýju byggingarnar?

Auk þess spurning, sem ég sendi á tölvupóstfangið, sem er gefið upp á heimasíðu Nýs Landspítala, en fékk aldrei svar við: Hvers vegna er ekki gert ráð fyrir nýrri geðdeildarbyggingu?

mbl.is Barátta fyrir mannsæmandi aðstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvelt að vera staðfastur í stjórnarandstöðu

Það er ódýrt að vera staðfastur þegar maður er í stjórnarandstöðu. Ef menn komast í ríkisstjórn snýst dæmið gjarnan við. Þá verða menn raunsæir og ábyrgir. Til eru nýleg dæmi sem sýna þetta. Mér hefur nú þótt lítið til ríkisstjórnarinnar koma, en hinir eru nú ekki frýnilegri. Verst að það sé ekki hægt að gera byltingu gegn stjórnarandstöðunni.
mbl.is Icesave mælikvarði á staðfestuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þurfti"

Landtökubyggðir Ísraela á Vesturbakkanum, herteknu landi, eru brot á alþjóðalögum. Mótmæli gegn byggingu fleiri slíkra eru bæði réttmæt, og nauðsynleg til þess að sporna gegn því að Vesturbakkinn verði hlutaður ennþá meira í sundur. Á sundurlimuðum Vesturbakka mun aldrei rísa palestínskt ríki og þar með aldrei verða samið um frið á grundvelli tveggja-ríkja-lausnar. En það hefur líklega aldrei staðið til, a.m.k. ekki af hálfu ísraelskra stjórnvalda.
mbl.is Ísraelsher hrekur mótmælendur á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullveldiskostur til vinstri

Úr stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar:

Alþýðufylkingin berst skilyrðislaust gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu, NATO og öðrum bandalögum heimsvaldasinna. Alþýðufylkingin beitir sér gegn óheftum fjármagnsinnflutningi til landsins og hvers konar skerðingu á fullveldi þjóðarinnar. Einnig styður Alþýðufylkingin baráttu annarra þjóða fyrir eigin fullveldi og gegn hvers konar arðráni og kúgun. Ísland á að beita sér í þágu friðar og réttlætis á alþjóðavettvangi.

Nánar á bráðabirgðavefsetri Alþýðufylkingarinnar.

mbl.is Vantar fullveldiskost til vinstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþýðufylkingin í Harmageddon

Þorvaldur Þorvaldsson, sem er í bráðabirgðastjórn Alþýðufylkingarinnar, var í viðtali í útvarpsþættinum Harmageddon á dögunum. Viðtalið er nú komið á netið: Hlustið á það.

Viðtal við Þorvald á Smugunni

Ég vek athygli á viðtali við Þorvald, sem er nýbirt á Smugunni: Alþýðufylkingin ætlar að sækja um listabókstaf -- stefnt að framboði á landsvísu.

Lesið líka 
stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband